Beyoncé Knowles kemur sterklega til greina í hlutverk Undrakonunnar (e. Wonder Woman) í samnefndri kvikmynd sem unnið er að. „Ég get ekki ímyndað mér betra hlutverk,“ sagði hún í samtali við Los Angeles Times. „Það væri líka hugað af framleiðendum að velja mig, því hörundsdökk Undrakona yrði heldur betur kraftmikil. Ég held að það sé tími til kominn.“
Undrakonan kom fyrst fram í myndasögum, en náði miklum vinsældum í kjölfar sjónvarpsþátta sem gerðir voru á áttunda áratugnum þar sem leikkonan Lynda Carter fór með aðalhlutverkið.