Hugh Jackman kynþokkafyllstur

Kvikmyndaleikarinn Hugh Jackman hefur verið valinn kynþokkafyllstur karla í heiminum. Jackman, sem er Ástrali, fagnaði fertugsafmæli sínu 12. október síðastliðin. X-Men stjarnan gerir nú víðreist að kynna mynd sína Australia.

Ástæðan fyrir valinu ku vera fjölhæfni Jackmans sem leikara og glæsilegur vöxtur hans. Jackman er 40 ára og að sögn löndu hans Nicole Kidman fær hann kvenfólk til að stama „Guð minn góður“ þegar hann nálgast.

Á eftir Jackman á listanum þetta árið er James Bond-leikarinn Daniel Craig, Jon Hamm, úr sjónvarpsþáttunum Mad Men, er sá þriðji, ungstirnið Zac Efron fjórði og Robert Buckley úr Lipstick Jungle fimmti.

Fótboltamaðurinn David Beckham, leikararnir Javier Bardem, Robert Pattinson og Joshua Jackson og sundkappinn Michael Phelps komust líka allir á listann.

Nicole Kidman og Hugh Jackman í kvikmyndinni Australia. Konur eru …
Nicole Kidman og Hugh Jackman í kvikmyndinni Australia. Konur eru sagðar fá í hnén þegar hann birtist á skjánum. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar