Greint hefur verið frá því í erlendum fjölmiðlum að tékkneska undirfatafyrirsætan Karolina Kurkovahafi engan nafla en Kurnikova er kynþokkafyllsta kona heims samkvæmt nýrri könnun sjónvarpssþáttarins E! Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Mun þetta hafa komið greinilega fram er hún kom fram á tískusýningu Victoria Secret fyrr í þessari viku og í kjölfarið hefur verið greint frá því að nafli hafi fram til þessa verið settur inn á myndir af maga hennar.
Kurkova hefur ekki viljað tjá sig um málið og umboðsmaður hennar segist ekki geta gefið annað upp en það að hún sé ekki geimvera.
Talið er líklegast að rekja megi naflaleysi stúlkunnar til þess að hún hafi gengist undir skurðaðgerð, annað hvort í fegrunarskyni eða af læknisfræðilegum orsökum.