Sparkað með sms skilaboðum

Reuters

Þýska tennisleikaranum Boris Becker var sparkað af unnustunni með smáskilaboðum nýverið. Sagði í skilaboðunum að leiknum væri lokið og til þess að leggja enn frekar áherslu á skilaboðin sendi hún þau fimm sinnum í síma tennisstjörnunnar fyrrverandi. Segir Becker í viðtali við Bildt í dag að þetta hafi komið honum gjörsamlega í opna skjöldu.

Becker sem nú er atvinnumaður í pókerspili hefur verið kenndur við ýmsar konur frá því hann skildi við eiginkonuna, Barböru Feltus, árið 2001. Á hann tvo syni með henni en auk þess á hann átta ára gamla dóttur með rússneskri fyrirsætu sem heldur því fram að hafa hitt Becker í klúbb og þau síðan haft kynmök á japönskum veitingastað í kjölfarið.

Becker náði heimsfrægð þegar hann vann Wimbledon mótið í tennis árið 1985 einungis sautján ára gamall. Nýjasta fyrrverandi kærasta hans, og sú sem sagði honum upp með sms skilaboðum, heitir Sandy Meyer-Woelden og er dóttir gamals þjálfara kappans. Hún er fimmtán árum yngri en Becker sem er fertugur.

Árið 2002 var Becker dæmdur í 2 ára skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik  en Becker viðurkenndi fyrir rétti að hafa í raun búið í Þýskalandi þótt hann ætti skráð lögheimili í Mónakó til að komast hjá að greiða skatta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft ekki að taka heiðurinn af því sem þú gerir svo vel, en það væri frábært ef þú gerðir það. Láttu það bara eftir þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Anna Sundbeck Klav
4
Colleen Hoover
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft ekki að taka heiðurinn af því sem þú gerir svo vel, en það væri frábært ef þú gerðir það. Láttu það bara eftir þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Anna Sundbeck Klav
4
Colleen Hoover
5
Birgitta H. Halldórsdóttir