Hljómsveitin Sigur Rós lauk tónleikaferð sinni um heiminn í Laugardalshöll í kvöld. Hefur sveitin spilað fyrir um 600 þúsund manns á 78 tónleikum á fimm mánuðum og kynnt nýjustu plötu sína. Tónleikarnir þóttu takast afar vel en nú ætlar hljómsveitin að taka sér frí frá tónleikahaldi um ótiltekinn tíma.