Lokið er skiptum á þrotabúi Little Trip ehf., áður Ferðar ehf., Skálholtsstíg 7 í Reykjavík.
Lýstar kröfur í búið námu alls rúmum 388 milljónum króna. Engar eignir fundust í búinu, að því er fram kemur í tilkynningu skiptastjórans, Helga Jóhannessonar hrl.
Kaupþing banki hf. átti langhæstu kröfuna í búið eða veðkröfu upp á rúma 341 milljón. Aðrir stórir kröfuhafar voru Sögn ehf. með kröfu að fjárhæð 31 milljón og SPRON með kröfu að upphæð 12,5 milljónir króna. Aðrir kröfuhafar voru Deloitte ehf., Tollstjórinn í Reykjavík og Hafnarbakki-Flutningatækni ehf.
Little Trip ehf. var stofnað til þess að framleiða kvikmynd Baltasars Kormáks, A little trip to Heaven. Myndin skartaði alþjóðlegum stjörnum í aðalhlutverkum, m.a. Óskarsverðlaunahafanum Forest Whitaker og Júlíu Stiles.