Ástralar minnast í dag danska arkitektsins Jørn Utzon, sem hannaði Óperuhúsið í Sydney, með því að dempa lýsinguna á óperuna og flagga í hálfa stöng við höfnina. Frá þessu er greint á vef danska dagblaðsins Politiken í dag.
Jørn Utzon lést níræður að aldri aðfaranótt laugardags og var banamein hans hjartaáfall.
Utzon
öðlaðist frægð fyrir hönnun sína á óperuhúsinu í Sydney, sem í fyrra komst á heimsminjaskrá Unesco þar sem byggingin þótti „meistaraverk sem táknaði snilldina í sköpunargáfu mannsins.“ Auk óperuhússins hannaði hann þekktar byggingar á borð við Kingohúsin við Helsingør, kirkjuna í Bagsværd og Fredensborgarhúsin.
Utzon vann keppni um
hönnun óperuhússins óvænt árið 1957. Hann sagði sig frá verkinu árið
1966, sex árum áður en það var opnað, vegna deilna við aðstandendur
byggingarinnar.