Sænska menningartímaritið Tidningen Kulturen hefur valið plötu Ólafs Arnalds, Eulogy for Evolution, eina af bestu plötum ársins. Segir í umsögn um plötuna að tónlist þessa Íslendingins sé eins og ljósið í enda ganganna.
„Draumkennt og margrætt lítið meistaraverk," segir Roberth Ericsson, sem setur plötuna í 2. sæti á lista yfir þær bestu. Í fyrsta sæti er Wildbirds & Peacedrums - The Snake, með Mariam Wallentin.