Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Jay Leno mun taka við nýjum sjónvarpsþætti hjá sjónvarpsstöðinni NBC þegar hann hættir að stýra kvöldþættinum Tonight Show í maí.
Tilkynnt var fyrir fimm árum, að Conan O'Brian myndi taka við af Leno í Tonight Show á næsta ári. Í dag tilkynnti NBC, að Leno muni taka við nýjum spjallþætti, sem sýndur verður fimm kvöld á viku á besta sjónvarpstíma.