Tónlistarkonan Emilíana Torrini hefur boðið stöllu sinni Lay Low að hita upp fyrir sig á þriggja vikna tónleikaferðalagi um Evrópu eftir áramót. Ferðin hefst 29. janúar næstkomandi í Frakklandi en lýkur í Amsterdam. Þær koma fram á 17 tónleikum víðs vegar um Evrópu. Boðið kemur í kjölfar þess að Lay Low hitaði upp fyrir Emilíönu í Háskólabíói á laugardag.