Samantha Ronson, kærasta leikkonunnar Lindsay Lohan, er nú sögð þjást af þunglyndi. Er hún sögð hafa leitað á Cedars-Sinai sjúkrahúsið í Los Angeles, vegna þess eftir að hafa hringt í nokkra vini sína og kvartað undan streitu og langþreytu.
„Samantha hringdi hingað og þangað. Hún hefur þjáðst af þunglyndi, svefn og lystarleysi. Lindsay reynir að hjálpa henni í gegn um þetta enda gekk hún í gegn um svipaða reynslu fyrir tveimur árum,” segir ónefndur heimildarmaður tímaritsins Life and Style Weekly.