Rokkarinn Pete Wentz er ekki par hrifinn af bragði brjóstamjólkur eiginkonunnar, Ashlee Simpson og segir að hún sé bæði súr og skrýtin á bragðið. Hann tekur þó fram að sonurinn, Bronx Mowgli, sé alsæll með bragðið af mjólkinni.
Wentz er alsæll í föðurhlutverkinu og vill bæta sem fyrst í hópinn. „Nú langar mig í sex börn. Ég meina töluna kannski ekki alveg en ég vil fleiri. Ég get ekki ímyndað mér að við látum staðar numið hér. Þetta er eins og ferðasöngur, svona kór sem kemur aftur og aftur."
Svo virðist sem fæðingin hafi tekið jafn mikið á eiginmanninn eins og á móðurina ef marka má orð Wentz. „Ég fylltist ótta rétt áður en hún fæddi. Ég hélt að ég væri að fá hjartaáfall þar sem hjartað í mér lét öllum illum látum."
„En þegar ég hélt á honum í fyrsta skipti þá sá ég að allt væri fullkomið. Allt var gott, svona eins og Lego. Þú veist hvað ég er að segja, Eins og þetta passaði allt saman," sagði hann í viðtali við útvarpsstöðina Sirius.