Carl Bruni-Sarkozy hélt upp á 41s árs afmæli sitt í fátækrahverfi í Brasilíu í dag, en hún er í heimsókn í landinu ásamt eiginmanni sínum, Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta.
Íbúar í Pavao-Pavaozhino fátækrahverfinu, sem er fyrir ofan Rio de Janeiro, tóku á móti forsetafrúnni með afmælissöng.
Þá var haldin tískusýning í hverfinu fyrir Bruni, sem starfaði lengi sem fyrirsæta, á vegum fransk-brasilískra góðgerðarsamtaka.
Frakklandsforseti, sem er í opinberri heimsókn í landinu, og brasilíski starfsbróðir hans undirrituðu vopnasamkomulag, sem nemur 8,6 milljörðum evra í dag.