Bandaríski leikarinn John Costelloe er látinn en hann var best þekktur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum ”Sopranos” þar sem hann lék kærasta Vito Spatafore.
Talið er að Coselloe, sem var 47 ára, hafi framið sjálfsvíg en hann fannst látinn á heimili sínum þann 18. desember með skotsár á höfði.
Hann starfaði sem slökkviliðsmaður í New York uns hann var ráðinn í hlutverk kokksins Jim Witowski í ”Sopranos” árið 2006.