Tveir franskir skíðamenn í svissnesku ölpunum eiga MP3 spilaranum sínum að þakka, að þeir fundust í nótt eftir að hafa villst. Björgunarmenn komu auga á ljósið frá spilaranum þegar þeir leituðu mannanna tveggja.
Neyðarkall kom frá skíðamönnunum seint í gær en áður en náðist í þá kláraðist batteríið í símanum þeirra. Þyrluáhöfn fann svo mennina í bröttu skógarlendi laust eftir miðnætti í nótt eftir að hún kom auga á ljósið frá stafræna spilastokknum sem mennirnir höfðu meðferðis.
Mennirnir ofkældust einungis lítillega þrátt fyrir að hafa þurft að bíða í um 15 stiga frosti.