Íslenskar snyrtivörur, framleiddar af Tær og dr. Jóni Braga Bjarnasyni, verða fáanlegar í verslunum í New York nú strax eftir áramót. Frá þessu greinir vefsíðan Style.com.
Kemur fram í fréttinni að Boutique Unique London, sem hefur flutt íslensku snyrtivörurnar til Bretlands, hafi nú náð samningum við Beuty Prophet LLC í Bandaríkjunum um sölu varanna þangað, en síðarnefnda fyrirtækið er með höfuðstöðvar í New York. Búist er við því að vörurnar verði komnar í hillurnar í janúar.