Kate Hudson hefur lýst því yfir að hún muni halda áfram að láta taka af sér nektarmyndir. Leikkonan segir að nektarmyndir gefi henni vald og flestar slíkar lostafullar myndir sem teknar hafi verið af henni séu listrænar.
Haft er eftir Hudson að henni þyki óskaplega gaman að vera fyrirsæta á nektarmyndum og hún muni halda því áfram. „Það er gaman. Ég hef líka lært að meta hæfileika ljósmyndaranna. Þetta er raunveruleg list og ég hef mikinn áhuga á þessari hlið ljósmyndalistarinnar.“
Hudson hefur líka lýst því yfir að hún sé tílbúin að afhjúpa allt í kvikmynd og hún væri til í nánast hvað sem er til að landa góðu hlutverki, jafnvel þó að það þýddi að koma nakin fram.
„Það fer eftir myndinni og kringumstæðum – nekt er alltaf erfið konum en mér er það nokkuð létt. Svo fremi að það geri eitthvað fyrir myndina,“ segir Hudson en þrátt fyrir allt sé nekt alltaf stærsta máið í tengslum við myndir. „En ef ég sæktist eftir hlutverki myndi ég gera nokkurn veginn hvað sem væri til að landa því.“