Bandaríski listmálarinn Andrew Wyeth lést á heimili sínu í Pennsylvaníu í dag, 91 árs að aldri. Hann var í senn afar vinsæll listamaður og umdeildur. Eitt þekktasta verk hans er Heimur Kristínar, mynd af lamaðri konu á akri.
Wyeth var gagnrýndur hart í listaheiminum fyrir að vera afturhaldssamur en hann var eindreginn realisti. Viðfangsefnið var oftast fólk og sveitalandslag á heimaslóðum hans í norðausturríkjunum. Gagnrýnendur sögðu sumir að hann smánaði stefnu realista. En mörgum þótti hann vera góður fulltrúi þeirra millistéttargilda sem módernistar sögðust hafna.
,,Hann málar fyrir almenning, nefin á fólki eru á sínum venjulega stað, veðurbarnar hlöðurnar og laufvana trén í skerandi einfaldleika landslagsmyndanna eru raunverulegri en veruleikinn sjálfur," skrifaði vinveittur blaðamaður árið 1963.