Mosfellingur ársins 2008 er athafnamaðurinn og hóteleigandinn Albert Sigurður Rútsson. Á árinu opnaði Albert hótel í Mosfellsbæ, Hótel Laxnes. Alli Rúts, eins og hann er oftast kallaður, er landskunnur skemmtikraftur og rak á árum áður eina þekktustu bílasölu landsins.
Hótel Laxnes er með glæsilegri byggingum í Mosfellsbæ en hótelið opnaði í byrjun septembermánaðar. Þetta kemur fram í bæjarblaðinu Mosfellingi sem veitir nafnbótina. Hótelið er búið 25 herbergjum og getur tekið á móti allt að 50 næturgestum.