Siglingastofnun hefur látið Listahátíð í Reykjavík í té fjóra vita, einn í hverjum landsfjórðungi, til listsýninga sem verða opnar allt næsta sumar gestum og gangandi. Sýningar verða í Bjargtangavita, Kópaskersvita, Dalatangavita og Garðskagavita, en hver þeirra verður fengin til umráða einum myndlistarmanni.
Listamennirnir eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Unnar Örn, Curver Thoroddsen og Gjörningaklúbburinn.