Vill ekki skilja

Blake Fielder-Civil og Amy Winehouse á góðri stundu.
Blake Fielder-Civil og Amy Winehouse á góðri stundu. Reuters

Amy Winehouse hefur heitið því að hún ætli ekki að láta eiginmann sinn komast upp með að skilja við sig.

Blake Fielder-Civil, sem dvelur nú í fangelsi, sótti nýverið um skilnað frá Winehouse í gegnum lögmann sinn.

Söngkonan lætur hafa eftir sér í breska blaðinu The Sun að hún ætli að berjast gegn því. „Ég elska Blake minn ennþá. Ég leyfi honum ekki að skilja við mig,“ sagði Winehouse sem hefur verið kennd við annan karlmann upp á síðkastið, rúgbýleikarann Josh Bowman sem er nú að reyna fyrir sér sem leikari. Það sást til þeirra saman í fríi í St. Lucia. „Josh er mjög elskulegur. En það var bara frí-flipp. Ég á minn Blake.“

Winehouse segist elska Fielder-Civil vegna þess að hann sé alveg eins og hún. „Blake er karlmannsútgáfa af mér. Við erum fullkomin fyrir hvort annað. Ég vil ekki fara aftur heim til Englands. Ég vil bíða hans hér,“ segir stjarnan sem nýtur sín vel í sólarlandaleyfinu.

Fjölskylda Fielder-Civil vonar að skilnaðurinn gangi í gegn því hún telur að Winehouse og Fielder-Civil séu ekki góð fyrir hvort annað.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir