Paris Hilton er nú sögð orðin leið á nýju vinkonunni sem hún valdi sér í raunveruleikaþættinum „Paris Hilton's BFF“. Þá mun systir Paris, Nicky, ekki þola vinkonuna Brittany Flickinger og neitar að umgangast hana. „Nicky þolir ekki nýju bestu vinkonu Paris," segir ónefndur heimildarmaður blaðsins New York Post.
Segir hann andúð Niky á Brittany vera svo mikla að hún hafi neitað þeim um gistinigu á heimili sem hún hafði til umráða er Sundance kvikmyndahátíðin fór fram í Utah.
Paris er einnig sögð hafa sýnt það á hátíðinni að hún væri orðin leið á Brittany. Stakk hún hana hvað eftir annað af og skemmti sér með Aubrey O'Day, söngkonu Danity Kane, í hennar stað. Að lokum er Brittany sögð hafa elt þær uppi grátandi og öskrandi: Paris hættu að stinga mig af.
Næsta dag hélt Paris hins vegar uppteknum hætti og tók félagsskap Chris DeWolfe, framkvæmdastjóra MySpace fram yfir félagsskap Brittany.