Madonna er sögð fara á stefnumót með brasilískri fyrirsætu, Jesus Luz, í þeim tilgangi að gera körfuknattleiksmanninn Alex Rodriguez, sem oft er kallaður A-Rod, afbrýðisaman.
Madonna, sem nú er fimmtug, hefur verið orðuð við Rodrigues síðan hún skildi við Guy Ritchie og er áfram um að sýna Rodrigues hverju hann missir af ef hann binst henni ekki.
Heimildarmaður sagði við dagblaðið New York Daily News að Madonna vildi vera við stjórnvölinn og henni hefði ekki enn tekist á ná almennilegu taki á Rodrigues. „Luz hefur veitt henni mun meiri athygli en Rodrigues upp á síðkastið. Ef A-Rod sýnir sig tilbúinn að bindast henni mun hann fá alla hennar ást. En það er ekki eins og hann hafi hugsað sér að gefa henni demantshring. Hvorki hann né Madonna hafa lýst sig tilbúin að sýna hvort öðru fullkomna trúmennsku,“ er haft eftir heimildarmanninum.