Fjölmiðlar hafa ekki farið varhluta af plögg-stríðinu sem nú geisar í kringum Söngvakeppnina. Keppendur beita öllum tiltækum ráðum til að koma sér í blöðin og á engan er hallað þegar því er haldið fram að þar fari fremstur í flokki Valli nokkur Sport.
Valli þessi sér um kynningarmál Elektru en vakti athygli hér á árum áður sem útvarpsmaður og síðar stjórnandi sjónvarpsþáttarins Með hausverk um helgar. Valli sá um kynningarmál Mercedes Club fyrir síðustu keppni og fór honum það vel úr hendi þó að segja megi að líkt og bankarnir hafi sveitin riðað til falls þegar í ljós kom að engin innstæða var fyrir velgengninni. Vonandi bíða sömu örlög ekki Elektru.