Parið Demi Moore og Ashton Kutcher hafa vakið athygli dýraverndunarsamtakanna PETA og skipar þeim í efsta sæti yfir ósmekklegasta fræga fólkið þegar kemur að klæðaburði á árlegum lista samtakanna.
Talsmaður PETA segir að Demi Moore sé illa séð meðal dýraverndunarsinna fyrir það að ganga í pelsum. Ekki bætti úr skák þegar Kutcher mætti í úlpu úr úlfaskinni á Sundance kvikmyndahátíðina.
En það eru fleiri sem fara í taugarnar á PETA. Má þar nefna Madonnu, Jessicu Simpson, Maggie Gyllenhaal, Kanye West, Lindsay Lohan, Olsen tvíburana, Mary J. Blige og Kate Moss.