Lee Redmond, bandarísk kona sem ekki hefur klippt neglur sínar frá 1979, lenti nýlega í slæmu bílslysi og braut neglurnar sem voru þær lengstu í heimi, að sögn BBC.
Redmond, sem er frá Salt Lake City í Utah, slasaðist mikið en gert er ráð fyrir að hún nái sér fullkomlega. Neglur hennar voru samanlagt um 8,5 metrar að lengd. Sú lengsta, á hægri þumalfingri, var 89 sm, að sögn Heimsmetabókar Guinness.