Hjá Senu er nú í undirbúningi glæsilegur safnkassi með öllum plötum hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Trúbrots.
Um er að ræða endurútgáfu á fjórum plötum sveitarinnar, Trúbrot (1969), Undir áhrifum (1970), Lifun (1971) og Mandala (1972) en þar fyrir utan verða í pakkanum tvær sjö tommur auk áður lags sem ekki hefur komið út áður.