Þegar Mickey Rourke tók við Golden Globe-verðlaunum fyrir bestan leik í kvikmyndinni The Wrestler nefndi hann hundana sína sérstaklega í þakkaræðunni. „Ég vil þakka öllum hundunum mínum, bæði þeim sem eru hér núna og þeim sem eru horfnir yfir móðuna miklu. Þeir eru mér kærari en nokkuð annað í heiminum.“ Nú er Loki, 17 ára chihuahua-tíkin hans, horfin á vit feðra sinna en hún drapst í fanginu á eiganda sínum. „Ég sakna Loki sárt en hún er enn með mér í anda. Mér finnst það blessun að hún fékk hægt andlát í örmum mínum,“ sagði leikarinn skrautlegi.