Magdalena Dubik kjörin ungfrú Reykjavík

Aðalbjörg Ósk, ungfrú Reykjavík 2008 krýnir Magdalenu Dubik
Aðalbjörg Ósk, ungfrú Reykjavík 2008 krýnir Magdalenu Dubik

Magdalena Dubik, 22 ára fiðluleikari, var í kvöld kjörin ungfrú Reykjavík. Keppnin fór fram á Broadway en var sýnd beint á Skjá einum. Magðalena hefur stundað tónlistarnám í 12 ár en stundar jafnframt fjarnám við Fjölbrautaskólann í Ármúla og stefnir á nám í læknisfræði eftir tónlistarnámið.  

Í öðru sæti í keppninni var Sylvia Dagmar Friðjónsdóttir, 19 ára Kópavogsbúi, sem stundar nám við Menntaskólann í Kópavogi. Í þriðja sæti varð Elísa Guðjónsdóttir, 19 ára Vestmannaeyingur, sem stundar nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla.

Í símakosningu varð hlutskörpust Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, 18 ára Reykvíkingur ættuð frá Ísafirði. Hún stundar nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla. Vinsælasta stúlkan var valin  Hlín Arngrímsdóttir, 18 ára Kópavogsbúi sem stundar nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.

Magdalena Dubik, ungfrú Reykjavík 2009.
Magdalena Dubik, ungfrú Reykjavík 2009. mbl.is/Ómar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að sýnast langt í milli þess sem þú hefur og þess sem þig dreymir um. Að binda trúss sitt við ranga fólkið getur leitt til þess að framfarir stöðvist.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér kann að sýnast langt í milli þess sem þú hefur og þess sem þig dreymir um. Að binda trúss sitt við ranga fólkið getur leitt til þess að framfarir stöðvist.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan