Botnlanginn svokallaði var veittur á dögunum þeim auglýsingum sem þóttu lélegastar á síðasta ári. Landsliðið, félag í eigu fag- og áhugamanna um markaðsmál, veitti verðlaunin og hlaut sjónvarpsauglýsing Símans, þar sem maður er étinn af ketti, fyrstu verðlaun.
Eitt er að gera vonda auglýsingu og annað að gera auglýsingu þar sem engin leið er að vita hvað verið er að auglýsa. Í þessu tilviki virðist Símanum hafa tekist hið ótrúlega og sameinað þetta tvennt.