Breska söngkonan Lily Allen segist vera staurblönk þrátt fyrir að hafa selt milljónir hljómplatna í gegnum tíðina. Er svo illa komið fyrir Allen fjárhagslega að hún sér fram á að neyðast til þess að selja BMW bifreið sína sem metin er á 35 þúsund pund, 5,6 milljónir króna.
„Ég hef heldur betur orðið fyrir barðinu á fjármálakreppunni svo ég neyðist til þess að selja bílinn minn, svo blönk er ég orðin."
Allen, sem keypti bifreiðina á síðasta ári, er afar hrifin af bílnum og segir þetta mesta munað sem hún hafi látið eftir sér. Fjárhagsáhyggjur Allen valda því að hún er að hugsa um að skipta um starfsvettvang og snúa sér að bakaraiðn.