Óvenjulegir tónleikar verða í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 17 á morgun, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Á tónleikunum verða eingöngu flutt kammerverk eftir íslensk kventónskáld. Flytjendurnir eru 11 konur, sem allar eru mjög virkar í íslensku tónlistarlífi.