Aðeins nokkrum dögum eftir að þau birtust í faðmlögum á rauða teppinu á óskarsverðlaunahátíðinni eru þau hætt saman. Allt virtist loksins ganga í haginn hjá Jennifer Aniston og John Mayer eftir að þau höfðu hætt og byrjað saman nokkrum sinnum undanfarið ár en þau voru ekki lengi í paradís.
Að sögn heimildarmanns tímaritsins People urðu þau ósátt í seinustu viku og ákváðu að hætta að hittast. „Jen heldur áfram með líf sitt eins og hún gerir alltaf og virðist hamingjusöm með það,“ segir hann.
Sagt er að Mayer hafi sagt Aniston upp eftir að hún kom úr kynningartúr á myndinni Marley & Me sem hún fór um Evrópu fyrstu vikuna í mars.
Aniston og Mayer hættu seinast saman í ágúst 2008 en byrjuðu aftur saman er leið á haustið og virtust vera mjög hamingjusöm undanfarna mánuði.