„Mér finnst rosalega gaman að þessu og maður er kominn á allt aðrar brautir þegar maður er farinn að túlka lýrik og sögu sem er í texta,“ segir trommuleikarinn Gunnlaugur Briem sem að undanförnu hefur sótt söngtíma hjá Margréti Eiri Vilhjálmsdóttur. Ástæðan er sú að hann mun syngja nokkur lög á næstu plötu hljómsveitar sinnar, Earth Affair.
„Ég hef verið að semja nýja tónlist og byrjaði á að raula hana inn til þess að fá meiri tilfinningu fyrir melódíum og hvernig þetta kæmi út. En svo hékk þessi söngur á og fólki fannst hann mjög sérstakur, og einhver sagði að aðalatriðið við þessa tónlist væri röddin mín,“ segir Gunnlaugur sem fór í söngtíma í kjölfarið, en hingað til hefur hann lítið sem ekkert gert af því að syngja opinberlega.