Japanar hafa afar gaman af vélmennum og véldýrum. Í dag hófst tískuvikan í Tókýó og nýjasta útgáfan af japönsku vélmenni var fengin til að opna sýningarnar.
Þótt Japanar séu greinilega komnir langt á þróunarbraut vélmenna verður að segjast að stúlkurnar sem stigu á svið á eftir vélkonunni og voru af holdi og blóði, voru öllu þokkafyllri.