Breski leikarinn, Bill Nighy 59 ára, segist hafa verið svo feiminn sem unglingur að hann gat ekki stundað kynlíf. Var hann svo feiminn við að opinbera nekt sína fyrir framan konu að hann hélt sig fjarri kynlífi þar til hann varð eldri og reyndari að árum.
Feimin virðist ekki alveg vera runninn af leikaranum því hann vill helst ekki sýna sig klæðalítinn og sumartíminn reynist honum oft erfiður.
„Það eru einungis tveir menn sem líta vel út í stuttbuxum og ég er hvorugur þeirra - Barack Obama og Brad Pitt."