Poppsöngkonan Rihanna, sem hefur upp á síðkastið verið í fréttum vegna árásar unnustans fyrrverandi, Chris Browns, á hana, kaus að lyfta sér á kreik í vikunni og fékk sér nýtt húðflúr. Það er ekki á áberandi stað en ögrandi engu að síður; Rihanna lét flúra skammbyssu í hægri handarkrikann. Hún segir að það eigi að vera verndartákn.
Rihan vildi upphaflega setja byssur á báðar axlir en hætti við þar sem það kynni að stefna samningi hennar við snyrtivöruframleiðanda nokkurn í voða. Þess í stað er byssan falin í handarkrikanum.
Rihanna, sem er 21 árs, hefur verið að safna flúri á líkamann. Hún er með stjörnuregn á bakinu, nótu á ökklanum, tákn stjörnumerkisins Fiskanna bak við eyrað, stjörnu innan í eyranu og „shhh...“ á vísifingri.