Ástfangin og hamingjusöm

Paris Hilton.
Paris Hilton. Reuters

Paris Hilton ætlar að ganga í hjónaband á komandi sumri.

Hótelerfinginn og unnusti hennar, Doug Reinhardt, eru ekki enn trúlofuð en eru farin að skipuleggja risastórt brúðkaup sem á að fara fram síðar á árinu.

„Á þessari stundu eru þau að hugsa um sumarbrúðkaup, kannski í ágúst á Bahama-eyjum. Þau eru mjög ástfangin og finnst þau tilbúin að gifta sig,“ sagði ónefndur heimildarmaður.

Orðrómur þess efnis að parið sé að hugsa um að ganga í það heilaga hefur gengið undanfarnar vikur. Hilton þráir víst að gera stjörnuna úr The Hills að eiginmanni sínum. „Hann verður eiginmaður minn. Við erum bestu vinir, það er ekki eins og við höfum bara verið að hittast. Við höfum þekkt hvort annað í nokkur ár. Ég var í sambandi áður en svo bara tengdumst við. Ég er mjög ástfangin og hamingjusöm,“ lét Hilton hafa eftir sér um sambandið sem hefur staðið síðan í febrúar.

Sagt er að Reinhardt hafi farið niður á annað hnéð í seinasta mánuði á veitingastað þar sem þau borðuðu ásamt fjölskyldu Hilton. En hún á að hafa lokað boxinu með hringnum og sagst þurfa tíma til að hugleiða bónorðið. Sá tími er líklega liðinn núna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Torill Thorup
5
Jenny Colgan