Bresk kona sem var með eiginmanni Amy Winehouse í meðferð, Blake Fielder-Civil, segist eiga von á barni með rokkaranum. Konan segir Fielder-Civil ætla að standa með sér og hjálpa henni að ala upp barnið.
Gilleen Morris heitir konan sem segist vera komin 6 vikur á leið með barn Fielder-Civil. Fyrir á hún tvö börn en skötuhjúin kynntust í meðferð. Mun þetta án efa hafa nokkur áhrif á skilnað Winehouse og Fielder-Civil en hann krafðist helmings eigna henna á þeim grundvelli að hann hefði haldið framhjá henni.
Nánar má lesa um ástarsamband Morris og Fielder-Civil hér.