Söngkonan Britney Spears uppskar hlátur meðal tónlistagesta í San Jose í Kaliforníu á sunnudagskvöld þegar hún áttaði sig ekki á í hvaða borg hún var. Spears sem kallaði til áhorfenda, „Hvað segið þið í Sacramento!?“ lét það þó ekki á sig fá og hélt tónleikum áfram eins og ekkert hafði í skorist.
Myndband af Spears sem hélt raunar tónleika í Sacramento kvöldið áður er birt á myndbandavefnum Youtube.