Nú er leikkonan Evan Rachel Wood að berjast fyrir því á fullu að unnustinn, Marilyn Manson (já, þau eru byrjuð aftur saman) fari í samstarf við poppdrottninguna (fyrrum?) Britney Spears. Ekki er öll vitleysan eins. Wood er handviss um að tónlistaraðdáendur muni falla á kné er þessi ólíklegi dúett hefur upp raust sína. Hugmyndina fékk hún þegar hún sá Spears dansa lostafullan dans við lagið „Sweet Dreams“, lag Eurythmics sem Manson breiddi svo skemmtilega yfir hér í árdaga.
Engin rökrétt skýring finnst á þessum látalátum hennar en ef um allt þrýtur hyggst hún syngja dúett með manni sínum sjálf. Manson er auðsýnilega hvattur áfram með ráðum og dáð heima fyrir. „Stand by your Man,“ eins og segir í laginu...