Leikstjórinn David Lynch er kominn hingað til lands í þeim tilgangi að kynna landanum hugleiðsluaðferð sem kallast innhverf íhugun eða Transcendental Meditation upp á ensku, TM. Aðferðin var þróuð af Maharishi Mahesh Yogi um miðja tuttugustu öld en frægustu lærisveinar hans eru án efa Bítlarnir, sem námu fræðin beint af meistaranum í Indlandi eins og frægt varð.
Lynch heldur opinn og ókeypis fund um þetta mál í Háskólabíói á morgun kl. 14. Tilgangur hans er „að bjóða öllum Íslendingum að læra innhverfa íhugun á lágmarksverði ásamt því að leggja grunninn að stöðugum friðarhópi 200 iðkenda sérstakrar framhaldstækni sem, að sögn Lynch, mun skapa samstillingu í þjóðarvitundinni og færa íslensku þjóðinni áður óþekkt lífsgæði á öllum sviðum,“ eins og segir í fréttatilkynningu.
Í viðtali Lesbókar sagðist Lynch hafa lagt stund á þessa tækni í yfir þrjátíu ár og þetta sé heilaleikfimi sem einfaldlega virki.
„Þetta er mjög, mjög, mjög gott. Þetta hentar öllum manneskjum og þetta eru ekki trúarbrögð en þó er þetta ekki á móti neinum trúarbrögðum. Þetta er ekki sértrúarhópur, einfaldlega leið til að uppgötva þá orku sem býr innra með okkur öllum,“ segir hann m.a. Í viðtalinu tjáir hann sig einnig um afstöðu sína til listarinnar og hina mögnuðu sjónvarpsþætti Twin Peaks sem eru mörgum ennþá í fersku minni.