Í ár eru liðnir fjórir áratugir síðan að fyrsta súpergrúppa Íslands, Trúbrot, stakk fyrst í samband. Á árunum 1969 til 1973 var sveitin jafnan í fararbroddi í nýsköpun í íslensku rokki, á þeim tíma er rokkið fór frá því að vera hrein skemmtun yfir í alvarlega, djúpþenkjandi list.
Af þessu tilefni koma allar hljómplötur Trúbrot út í forláta öskju og í Lesbók morgundagsins er rýnt rækilega er í feril þessarar merkissveitar.