Gríðarlega góð stemning var á frumsýningu Söngvaseiðs í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi og voru leikarar klappaðir upp aftur og aftur. Þótti Valgerður Guðnadóttir ekki gefa Julie Andrews neitt eftir í hlutverki barnfóstrunnar frægu.
Leikararnir Valgerður Guðnadóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson litu ekki út fyrir að vera stressuð í förðun rétt fyrir frumsýningu á Söngvaseið í gærkvöldi enda líklega engin ástæða til.