Bandarískir kvikmyndahúsagestir tóku nýju Star Trek kvikmyndinni fagnandi um helgina en hún skilaði um 76,5 milljónum dala í kassann frumsýningarhelgina. Er það álíka fjárhæð og þær tíu Star Trek myndir hafa skilað samanlagt í kassann á frumsýningarhelgi.
Í Star Trk myndinni er forsögu einnar stórkostlegustu könnunarferðar mannkynssögunnar fylgt eftir. Uppvaxtar- og mótunarár James T. Kirk og áhafnar hans í Starfleet-skólanum eru þungamiðja myndarinnar sem kemur úr smiðju J.J. Abrams (Lost, Mission: Impossible III, Cloverfield). Leikstjóri myndarinnar er J.J. Abrams og með helstu hlutverk fara: Chris Pine, Zachary Quinto, Eric Bana, Simon Pegg og Winona Ryder.
Fimm vinsælustu í kvikmyndahúsum vestanhafs um helgina:
1. Star Trek, 76,5 milljónir dala
2. X-Men Origins: Wolverine, 27 milljónir dala
3. Ghosts of Girlfriends Past, 10,45 milljónir dala
4. Obsessed, 6,6 milljónir dala
5. 17 Again, 4,4 milljónir dala.