„Kvöldið er búið að vera rosalega flott og þetta gekk mjög vel,“ sagði María Björk, umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur, þegar blaðamaður náði á hana til Moskvu rétt eftir að úrslitin úr undankeppninni urðu ljós í kvöld.
„Jóhanna var rólega allan tímann en að vonum mjög ánægð þegar kom í ljós að Ísland færi áfram, enda er hún mikil keppnismanneskja,“ segir María en Jóhanna þurfti að fara beint á blaðamannafund eftir keppnina, kl. 2 um nótt að rússneskum tíma.