Jade Ewen, sem keppir fyrir hönd Bretlands í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva, sagði í samtali við BBC skömmu eftir að úrslit
undankeppninnar lágu fyrir í kvöld, að sá keppandi sem hún óttaðist
einna mest væri Jóhanna Guðrún frá Íslandi.
Þulur breska sjónvarpsins var hrifinn af íslenska laginu og sagði áður en niðurstöður undankeppninnar voru tilkynntar að hann reiknaði með að lag Möltu og Íslands kæmust áfram. Eftir að úrslitin lágu fyrir var rætt við Jade Ewen um niðurstöðuna. Hún var spurð hvort það væri eitthvert lag sem hún óttaðist að myndi veita sínu lagi harða keppni og nefndi hún þá íslenska lagið.
Lagið sem Jade Ewen syngur heitir It's My Time og er samið af Andrew Lloyd Webber.