Þriggja daga stofutónleikar Listahátíðar hefjast í dag. Um helgina, frá föstudegi til sunnudags, verða tuttugu og fimm stofutónleikar á jafn mörgum heimilum í Reykjavík, í póstnúmerum 101 til 111. Fyrstu tónleikarnir verða í dag kl. 16.00 en þá mun Benda-slagverkshópur ríða á vaðið með tónleika heima í stofu í Heiðargerði 1b.