Hljómsveitin amiina er meðal þeirra fjölmörgu listamanna sem taka þátt í stofutónleikum Listahátíðar en hljómsveitin hélt tónleika í húsi Hannesar Hafstein að Grundarstíg 10 í 101 í kvöld. Stofutónleikarnir hófust í gær en alls verða stofutónleikarnir tuttugu og fimm talsins á jafn mörgum heimilum í Reykjavík, í póstnúmerum 101 til 111.