Jóhanna Guðrún nýjasta þjóðhetja okkar Íslendinga biðlar nú til Alexander Rybak, sigurvegara Evróvisjón, um að koma og taka lagið með sér á stórtónleikum hennar í Laugardalshöll hinn 4. júní.
„Það væri æðislegt ef Alexander gæti komist að heimsækja okkur. Við erum að athuga hvort hann getur það en hann er auðvitað með brjálaða dagskrá núna,“ segir Jóhanna Guðrún sem hefur formlega boðið norsku stjörnunni að koma fram með sér á tónleikunum.